Vefir, hýsing og eftirlit
Fyrirsjáanleiki byggður á yfir 20 ára reynslu
Fyrir mörg fyrirtæki er vefsíðan dýrmætasta eignin í stafræna heiminum. En vefur er ekki bara falleg framhlið; á bak við hann þarf að vera traustur vélbúnaður, óaðfinnanlegt öryggi og stöðugt eftirlit. Þegar vefurinn bilar eða gögn glatast getur það haft alvarlegar afleiðingar fyrir bæði orðspor og tekjur fyrirtækis.
Hjá Snædal tökum við vefhýsingu og eftirlit alvarlega. Við bjóðum ekki upp á stöðluð færibandatilboð þar sem þú ert bara númer í röðinni. Okkar nálgun er persónuleg, ráðgefandi og byggð á ríflega tveggja áratuga reynslu af hönnun, uppsetningu og rekstri flókinna og kröfuharðra vefkerfa.
Undir stjórn Jónasar Snædal, tölvunarfræðings vefþróara og kerfisstjóra, tryggjum við að vefurinn þinn, hugbúnaðurinn og tölvupósturinn virki áreiðanlega, hratt og örugglega – alla daga ársins.
Ríflega 20 ára reynsla af vef- og kerfisrekstri
Bakgrunnur í tölvunarfræðum og rúmlega 20 ára reynsla í upplýsingatækni hefur gefið okkur djúpan skilning á því hvað þarf til að halda úti öruggum og skalanlegum veflausnum.
- Reynsla úr opinbera geiranum: Í tólf ár bar Jónas ábyrgð á rekstri, hýsingu og þjónustu fyrir yfir 150 menntatengda vefi Reykjavíkurborgar. Hann stýrði þarfagreiningu og flutningi allra skólatengdra vefja borgarinnar úr dreifðum lausnum yfir í eitt samhæft umhverfi. Þessi reynsla af því að stýra stórum, viðkvæmum kerfum byggði upp ómetanlega reynslu í að forgangsraða öryggi, uppitíma og skipulagi.
- Kerfisstjórn og hýsingar: Jónas hefur borið ábyrgð á hýsingu á vel yfir hundrað vefjum og póstkerfum bæði á Windows og Linux þjónum. Þessi bakgrunnur úr stórum og litlum rekstri lagði beinan grunn að því öfluga og hnökralausa umhverfi sem Snædal býður upp á í dag.
Öryggi, staðlar og persónuvernd (GDPR) í fyrirrúmi
Í dag dugir ekki lengur að setja bara upp vef – hann þarf að standast lög og öryggiskröfur. Fyrirtæki þurfa að geta treyst því að upplýsingar séu dulkóðaðar, bakkaðar upp og meðhöndlaðar lögum samkvæmt.
- ISO 27001 og kerfisbundið öryggi: Reynsla okkar af ISO 27001 vottuðu rekstrarumhverfi og innleiðingu, rekstri og hönnun ferla til að uppfylla þær ströngu kröfur sem slíkt umhverfi krefst, eru hjartað í okkar þjónustu hjá Snædal.
- GDPR og persónuvernd: Við leggjum ríka áherslu á kröfur GDPR löggjafarinnar. við höfum frá upphafi einblínt á uppsetningu og hýsingu GDPR-vottaðra vefja og skýjalausna, auk þess að koma að gerð gagnavinnslusamninga. Hjá okkur eru gögnin þín (og þinna viðskiptavina) hýst rétt.
- Kröfuhörð sérkerfi: Við höfum leitt innleiðingu á miðlægum, dulkóðuðum skjalavinnslu- og deilingarlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vinna með viðkvæm gögn. Þessi reynsla tryggir að við hjá Snædal vitum nákvæmlega hvernig á að meðhöndla viðkvæm gögn og tryggja örugg samskipti í gegnum veflægar gáttir.
Hvað felst í hýsingu og eftirliti hjá Snædal?
Við sníðum hýsingar- og eftirlitssamninga að þörfum hvers og eins, hvort sem um ræðir einfalda kynningarvefi eða flóknar vefverslanir og kerfi. Samningur við Snædal felur yfirleitt í sér:
- Hraða og örugga hýsingu: Við notum áreiðanlega vefþjóna og uppsetningu sem er fínstillt fyrir þína veflausn.
- Reglubundið eftirlit og uppfærslur: Við vöktum vefinn þinn 24/7. Við sjáum um að halda vefþjónum, vefkerfum og viðbótum (plugins) uppfærðum til að loka á öryggisholur áður en þær verða að vandamáli.
- Öryggisafritun (Backup): Við tökum reglubundin öryggisafrit. Ef eitthvað fer úrskeiðis, getum við endurheimt vefinn fljótt og örugglega.
- Tækniþjónusta og ráðgjöf á mannamáli: Við erum ekki bara andlitslaus þjónusta, falin á bak við spjallrás og beiðnakerfi. Við veitum fyrsta, annars og þriðja stigs þjónustu. Við leggjum mikinn metnað í að útskýra tæknileg mál á mannamáli, veita ráðgjöf um uppbyggingu innviða og mæta þínum raunþörfum án óþarfa flækjustigs.
Fyrirsjáanleiki og hugarró fyrir þinn rekstur
Okkar markmið er að vera samstarfsaðilinn sem heldur þínum stafræna rekstri og sýnileika út á við gangandi hnökralaust. Með því að færa hýsingu, vefumsjón og tæknilegt eftirlit til okkar færð þú meiri tíma til að sinna þínum viðskiptavinum og þinni kjarnastarfsemi.
Við hjá Snædal vinnum sem eitt teymi og sjáum til þess að tæknilegu lausnirnar, öryggið og hýsingin vinni með vef- og samfélagsmiðlalausnunum til að hámarka þinn árangur.
Hafðu samband og fáðu faglega ráðgjöf um hvernig við getum gert þinn vefrekstur öruggari, hraðari og algjörlega áhyggjulausan.
